Leita í fréttum mbl.is

Úrslit æfingaleikja

Strákarnir spiluðu við 7.flokk á mánudaginn síðasta og endaði leikurinn með naumum sigri 7.flokks 38-28 en leikurinn var jafn allan leikinn og t.d. eftir 3 leikhluta var jafnt! 7.fl spiluðu án 2 langbestu leikmanna sinna en voru samt sem áður með hávaxna og öfluga stráka innanborðs. Við spiluðum nokkuð vel á köflum og spiluðu allir svipað mikið en okkar lið var spilað á 5. og 6.bekks strákum auk tveggja úr 4.bekk sem fengu að spreyta sig. Með smá meiri baráttu og betur kláruð layup hefðum við getað unnið þennan leik!

Í dag spiluðu svo peyjarnir sem keppa á Íslandsmótinu um helgina við stelpurnar í 6.bekk og unnu 40-35 eftir jafnan og mjög spennandi leik eins og alltaf þegar þessi 2 hópar mætast! Stelpurnar voru yfir 8-14 eftir 2 leikhluta en þá tóku strákarnir heldur betur við sér og hefndu fyrir tapið í þarsíðustu viku gegn stelpunum! Næsti leikur hjá þessum krökkum innbyrgðis er eftir viku..

Æfing á morgun fimmtudag og svo foreldraæfingin á föstudag! Sjáumst hressir þá!

kv. Bjössi þjálfari


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Þjálfari

5. og 6. bekkur drengja
Björn Einarsson s. 864-3123 bjossieinars10@yahoo.com
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband